Mikið úrval af háreyðinga vaxi frá Ástralíu - ATH Jax Wax er nýja heitið á vaxinu frá Adam & Eve. Allt vaxið frá þeim er vegan og er sérstaklega vottað af PETA. Það er bæði vax sem er fyrir strimla og eins fyrir harðvax eða braselískt - þar sem enga strimla þarf.

There is no video clip yet

Jax Wax hafa gefið út mörg fín myndskeið sem fara nánar útí hvernig sem bestur árangur næst. Endilega kíkið:

Súkkulaði vax, harðvax sem inniheldur Titanium Dioxið, efni sem gerir vaxið betra fyrir viðkvæma húð. Hentar vel þynnri og þurri húð - tekur jafnvel mjög þrjósk hár- hentar einstaklega vel í andlit þar sem það veldur mjög lítilli ertingu. Sérstaklega gott fyrir eldri húð.

Sítrónu vaxið inniheldur Titanium Dioxið - þetta er alhliða harðvax sem tekur jafnvel fíngerðustu hárin - teygjanlegt og mjúkt- hentar öllum húðgerðum og hárum-

Paradise er harðvax sem er styrkt með Mica - það er sértaklega fljótt að þorna og hentar vel fyrir þær sem vinna hratt- Ilmar af kókos og má nota á öll svæði líkamans-

Jarðaberja harðvaxið inniheldur Titanium Dioxið, kókosolíu og Mica sem gefur aukinn styrk- sérstaklega hannað á erfiðari, grófari hár- fljótþornandi en samt sveigjanlegt -

Sama vaxið - nýtt nafn!

Angelic harðvaxið er án allra litarefna og náttúrlegar efna sem valda oft ofnæmi - Inniheldur Titanium Dioxið sem dregur úr roðaviðbrögðum húðarinnar - hentar á alla staði líkamans og tekur mjög vel erfið hár og stutta brodda -

Lavander harðvaxið inniheldur Titanium Dioxið sem dregur úr roðaviðbrögðum húðarinnar og lavander olíu- virkar róandi á húðina og gefur sársaukaminni meðferð- inniheldur engin viðbætt ilmefni - hentar á alla húð og öll svæði - fjarlægir allar gerðir af hárum auðveldlega, líka brodda-

Sama vaxið - nýtt nafn!

Kókos og lime harðvaxið inniheldur Titanium Dioxið - er sérstaklega gott fyrir viðkvæma húð - mjúkt og gott að vinna - kókos pre vax olían frá Adam & Eve hentar sérlega vel undir þetta vax -

Sama vaxið - nýtt nafn!

Original sin er harðvax sem er sérstaklega hannað fyrir háreyðingu á karlmannshárum - tekur sérstaklega vel erfið, gróf og inngróin hár - hannað fyrir karlmenn og elskað af konum - lakkrísilmur -